Lín Design

Karfan er tóm.

Leikaðstæða fyrir börnin


Í verslun Lín Design er þægilegt og rólegt umhverfi. Fullorðna fólkið getur gefið sér tíma til að skoða sig um í versluninni meðan börnin leika sér í barnahorninu. 

Í barnahorninu er burstabær sem er hannaður af Freydísi Kristjánsdóttur.  Bærinn er hluti af mynstri í sængurfatnaðinum – Íslensku dýrin.  Í bænum eru bækur og íslensk tuskudýr fyrir börnin til að leika með. 

Í barnahorninu er einnig að finna uppábúin dúkkurúm.   Rúmfatnaðurinn í dúkkurúmunum eru umbúðirnar af barnarúmfatnaðinum.   Með því að pakka barnasængurfatnaðinum í endurnýtanlegar umbúðir gerum við umhverfinu gott á sama tíma og við gleðjum börnin.

       

Við tökum vel á móti börnunum í Lín Design. 


Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið | Sími: 533 2220 | Netfang: lindesign@lindesign.is