Lín Design

Karfan er tóm.

Þvottaleiðbeiningar

Markmið okkar er að hanna vandaðar vörur sem gleðja og veita vellíðan.  Til að viðhalda gæðum vörunnar mælum við með eftirfarandi þvottaleiðbeiningum.

   

SÆNGURFATNAÐUR (100% bómull)

  • Æskilegast er að þvo bómullina við 40 gráður, ekki ofhlaða þvottavélina.
  • Notaðu þvottaefni sem inniheldur ekki klór.
  • Ef sængurverin eru með útsaum þá er gott að snúa þeim við og þvo á röngunni.
  • Við mælum ekki með mýkingarefni í þvottinn þar sem efnasambönd í mýkingarefninu verða til þess að bómullinn dregur minna í sig af vatni og þá mýkist sængurfatnaðurinn síður. Í stað mýkingarefnis er hægt að nota örlítið af edik sem virkar mjög vel.
  • Þegar þvotti er lokið, togaðu efnið til á meðan það er blautt.
  • Ef þú notar þurrkara, stilltu á minnsta hita. Við mælum með að efnið sé tekið út áður en það nær fullum þurrk til að draga úr krumpum í efninu.
  • Gera má ráð fyrir að bómull minnki um 3-5% við fyrsta þvott/þurrkun (miðað við þvott á 40c). Ef þvegið er á hætta hita má gera ráð fyrir allt að 7% minnkun á efni.
  • Bómull þolir háan hita en hærri hiti framkallar meiri krumpur í efninu.
  • Mun auðveldara er að strauja raka bómull.
  • Aðskiljið hvítan og litaðan þvott þar sem litað efni er líklegt til að gefa frá sér lit við fyrst þvott.
  • Bómull er viðkvæm fyrir sólarljósi. Skíni sólarljós á sængurfatnað má gera ráð fyrir að mynstur sængurversins dofni með tímanum. Sólarljós getur einnig upplitað efni.
  • Forðastu að þurrka þvott í svefnherbergi ef þú notar dúnsængur. Raki úr þvottinum getur farið í sængurnar þar sem dúnn er mjög rakadrægur.

DÚKAR (100% pólíester)

Dúkar úr gerviefnum eru afar auðveldir í umhirðu, þá má setja í þvottavél og þurrkara og þeir eru straufríir. Auk þess er auðveldara að ná erfiðum blettum úr gerviefnum. Pólíester dúkarnir frá Lín Design draga ekki í sig vökva.

  • Notaðu þvottaefni sem inniheldur ekki klór
  • Dúkarnir eru framleiddir úr fráhrindandi efni, það er því auðveldara að ná blettum úr efninu.
  • Við mælum með litlu magni af mýkingarefni til að afrafmagna dúka í þvotti (eingöngu fyrir dúka sem eru framleiddir úr políester).
  • Dúkarnir eru úr straufríu efni og þola því þurrkara (minnsta hitastig).
  • Sólarljós getur framkallað upplitun ef þvottur hangir lengi utandyra.

 

DÚNSÆNGUR (100% dúnn & 100% bómull)

  • Áður en dúninum er komið fyrir í sængunum er hann hreinsaður með öflugum hreinsivélum. Dúnninn er þveginn og hreinsaður til að draga úr líkum á að ryk og önnur óhreinindi verði eftir í dúninum, sem geta valdið astma og ofnæmiseinkennum.
  • Rannsóknir sýna að fæstir eru með ofnæmi fyrir dúninum heldur óhreinindum sem finnast í sængum.
  • Engin gerviefni né fiður er að finna í sængunum frá LínDesign og því er hægt að þvo þær í þvottavélum. Mælt er með þvotti í stað hreinsunar þar sem fitusambönd í dúninum eiga til með að taka til sín kemísk efni sem finnast í hreinsivökva sem notaður er við hreinsun. Dúnn hrindir frá sér vatni og því verða sængurnar ekki þungar við þvott.
  • LínDesign sængurnar má þvo á 40°c (stutt þvottaprógram). Nauðsynlegt er að setja sængina í þurrkara að loknum þvotti.
  • Mælt er með að nota um 1/3 af venjulegum þvottaefnisskammti. Ekki er mælt með að nota mýkingarefni.
  • Mikilvægt er að þurrka dúninn vel því annars er hætta á að hann mygli.
  • Blautur dúnn hefur auðþekkjanlega lykt sem hverfur þegar dúnninn er orðin þurr. Betra er að þurrka sængurnar við minni hita til lengri tíma. Æskilegt er að hitastigið í þurrkaranum fari ekki yfir 60°c.
  • Gott er að setja tennisbolta með sænginni í þurrkarann þar sem boltinn hjálpar við að slá lofti í sængina á ný.
  • Þar sem ytra byrði sængurinnar er úr úrvals líni, 270 þráða bómul, má búast við að efnið dragist saman um 3-5% eftir fyrsta þvott og þurrkun.
  • Dúnninn er saumaður í hólf sem heldur dúninum á sínum stað. Hólfin eru þannig hönnuð að dúnninn geti lyft sér svo sem mest einangrun fáist úr dúninum. Mikilvægt er að viðra sængina reglulega.
  • Ekki er mælt með að nota ryksugu á sængina.
  • Viðraðu dúnsængina reglulega. Það er ekki heppilegt að viðra dúnsæng utandyra ef rakastig er hátt, þá dregur sængin í sig raka í stað þess að losa raka.

 

Handklæði (100% bómull)

  • Handklæðin frá Lín Design eru ofin úr Pima bómull sem mýkist einstaklega vel
  • Áður en ný handklæði eru þvegin í fyrsta sinn er gott að láta þau liggja yfir nótt í köldu vatni.
  • Við mælum ekki með mýkingarefni þar sem efnasambönd í mýkingarefninu verða til þess að bómullinn dregur minna í sig af vatni.
  • Mestu gæðin nást þegar handklæðin hafa verið þvegin í nokkur skipti.
  • Handklæðin þéttast þegar þau eru þvegin. Gott er að þurrka handklæðin í þurrkara.
  • Ekki er mælt með því að fólk með ofnæmi hengi handklæði til þerris utandyra þar sem þau geta dregið í sig ofnæmisvalda.
  • Vönduð handklæði mýkjast með tímanum og eru að þéttast fyrstu skiptin sem þau eru þvegin.

 

ALMENNAR ÞVOTTALEIÐBEININGAR

  • Þvoðu koddaver og sængurver saman.
  • Því fyrr sem þú þværð óhreinan þvott, því líklegra er að þú nærð óhreinindunum  úr efninu.
  • Þvoðu sængurfatnað áður en þú notar hann í fyrsta sinn. Sængurfatnaðurinn mýkist þegar hann er þveginn.
  • Gera má ráð fyrir 2-3% minnkun á þvotti sem framleiddur er úr 100% bómull. Þvoðu því aldrei á hærri hita en 40 gráður í fyrsta þvotti.
  • Hærri hiti, hvort sem er í þvotti eða þurrkun, framkallar meiri krumpur í efninu.
  • Forðastu að nota mýkingarefni á bómullarvörur. Mýkingarefni ætti eingöngu að nota til að afrafmagna gerviefni. Hægt er að nota edik í stað mýkingarefnis.
  • Þvoðu einstaka sinnum á 60 gráðum til að hreinsa þvottavélina.
  • Ekki ofhlaða þvottavélina.
  • Heppilegt er að þvo þvott á röngunni, sérstaklega litaðan þvott.  Það fer betur með þvottinn á meðan á þvottinum stendur og dregur úr líkum að þau hnökri.
  • Gerfiefni geta hnökrað í þvotti.  Það gerist vegna núnings milli þvottsins og tromlunnar.  Til að draga úr líkunum á að þvotturinn hnökri þá er best að þvo á röngunni og setja ekki mikið í vélina.  Þá er þvotturinn alltaf í nægu vatni í stað þess að nuddast saman hálf rakur sem verður til þess að efnið hnökrar.

 

BLETTAHREINSUN – nokkur góð ráð!

Því fyrr sem efnið er þvegið því líklegra er að bletturinn náist úr efninu. Oftast reynist erfiðara að ná blettum úr þétt ofinni bómull samanborið við gisna bómull. Ekki nota mjög heitt vatn á bletti, byrjaðu með volgu vatni. Heitt vatn getur fest blettinn frekar í efninu. Varist að nudda vatninu í efnið, bleytið frekar og notið síðan eftirfarandi ráð.

Stundum er auðveldara að ná blettum úr nýju efni samanborið við eldra efni.  Ástæðan er sú að þræðir í eldra efni verður grófara með tímanum og þá festast blettir auðveldara í efninu.  Í nýju efni eru þræðirnir sléttir & mjúkir og því festast blettir síður í efninu.

Matarblettir / fitublettir Notið fyrst blettahreinsi á efnið. Ef bletturinn er áfram til staðar er hægt að blanda edik í vatn sem síðan er notað sem blettahreinsir. Þvoið síðan í þvotti samkvæmt leiðbeiningum á vöru.

Kaffi & te Gott ráð er að hella salti yfir blettinn. Síðan er mikilvægt að koma efninu í kalt vatn sem allra fyrst. Því fyrr sem þú kemur efninu í vatn, því líklegra er að bletturinn náist af. Látið efnið liggja í köldu vatni í um 30 mín áður en efnið er síðan þvegið samkvæmt leiðbeiningum á vöru.

Rauðvínsblettir Því fyrr sem þú vinnur í blettinum því líklegri ertu til að ná árangri. Fyrsta skrefið er að þurrka upp eins mikið og þú getur af blettinum. Ef hvítvín er til staðar er gott að hella örlitlu magni yfir blettinn. Helltu síðan salti eða lyftiduft á blettinn. Þvoðu síðan dúkinn samkvæmt leiðbeiningum á vöru.

Barnamatur.  Leggðu í bleyti í volgu vatni í minnst 2 klukkustundir, þvoðu síðan samkvæmt leiðbeiningum á miða.

Blóð  Skolaðu blettinn strax með köldu vatni.  Ef bletturinn er þurr þá er hægt að leggja hannn í bleyti (með þvottaefni) í nokkrar klukkustundir áður en hann er þveginn.  Þvoðu svo eins og venjulega.

Kaffi & te.  Láttu liggja í bleyti í köldu vatni í 1 klst, þvoðu svo með þvottaefni eins og venjulega.

Ryð eða járnblettir.  Stráðu salti á blettinn og kreistu síðan sítrónusafa yfir efnið og láttu liggja á efinu í nokkra tíma og þvoðu síðan samkvæmt þvottaleiðbeiningum á miðanum á vörunni.

Olíumálning.  Notaðu svamp sem hefur verið vættur með terpentínu (eða penslasápu).  Þvoðu síðan samkvæmt þvottaleiðbeiningum.

Kertavax.  Skafðu vaxið af efninu og leggðu síðan pappír eða viskastykki yfir og undir blettinn.  Þrýstu heitu straujárni á blettinn á bakhliðinni.

Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið | Sími: 533 2220 | Netfang: lindesign@lindesign.is