Lín Design

Karfan er tóm.

Frá hugmynd að hönnun - íslensk sumarblóm

Við hjá Lín Design erum stöðugt að hanna og þróa nýjar vörur.  Á hverju vori kynnum við nokkur ný íslensk blómamynstur.  Að þessu sinnu erum við að vinna með 3 blóm; Biðukollu, Hjartarfa & Möggubrá.  Hönnuðir okkar eru þessa stundina að leggja lokahönd á blómin.  Þar sem verkið er langt komið datt okkur í hug að sýna hvernig blómin verða til, frá hugmynd að hönnun.

Biðukollan er áberandi í íslenskri náttúru. Í upphafi var ætlunin að leggja áherslu á blómið og fræin.  Eftir nokkrar prufur var ákveðið að hanna blómið ásamt stofni í grasi sem vex í kringum biðukolluna.  Biðukollan er væntanleg á sængurfatnað í sumar.

   

Hjartarfi er smágert blóm sem vex víða. Hugmynd hönnuðar var að teikna lítil hjörtu í stað laufblaða. Útkoman er laglegt mynstur sem verður bróderað á sængurfatnað, bæði fyrir börn og fullorðna.

   

Möggubrá, eða Margerit eins og hún er kölluð á skandinavísku, er einstaklega fallegt sumarblóm. Hún var áður kölluð Margaríta til heiðurs Margréti Danadrottningu en nú hefur hún fengið íslenskt sæmdarheiti. Möggubrá er væntanleg á sængurfatnað þegar liður að sumri.

   

Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið | Sími: 533 2220 | Netfang: lindesign@lindesign.is