Lín Design

Karfan er tóm.

Velkomin í vefverslun Lín Design.


Hér á síðunni getur þú skoðað vöruúrvalið sem er það sama og í verslun okkar á Laugavegi 176.  Til að skoða vöruúrvalið velur þú flokka hér að ofan – svefnherbergi, stofa, baðherbergi, börn & eldhús.   Fyrir hvern vöruflokk finnur þú vörur þar sem birtar eru myndir, verð og frekari upplýsingar um vöruna.   Vöruverð í vefverslun er það sama og í verslun Lín Design.

Í netverslun Lín Design er tekið við öllum kreditkortum.  Greiðsla fer fram á vörðu svæði þar sem kortanúmerin eru dulkóðuð.  Meðferð kortaupplýsinga og greiðslna fer í gegnum örugga þjónustu frá Skýrr.  Vefverslun Lín Design notast við VeriSign greiðslukerfið á netinu.  VeriSign öryggisstaðallinn er talin meðal þeirra öruggustu á netinu.  Viðskiptavinir okkar geta því verið fullvissir um að þær upplýsingar sem skráðar eru í vefverslun eru algjörlega varðar utanaðkomandi aðilum. 

Pöntun er afgreidd úr vefverslun eins fljótt og hægt er, en aldrei seinna en 24 tímum eftir að pöntun hefur borist.  Varan er síðan send með Íslandspósti.  Við sendum þér vöruna án endurgjalds á næsta pósthús (innanlands).  Ef verslað er erlendis frá greiðir viðtakandi sendingarkostnaðinn.  

Öll okkar vara er hönnuð á Íslandi og framleidd úr sérvalinni bómullartegund sem mýkist einstaklega vel.  Við trúum að vandaðir hlutir gleðji og veiti vellíðan. 

 
   
   
   

Lín Design Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið | Sími: 533 2220 | Netfang: lindesign@lindesign.is