Rómantík - vorlínan 2012
Vorið er sá tími sem við höfum beðið eftir. Eftir þungan vetur færir vorið okkur nýjan kraft. Litir vorsins minna okkur á fegurð og gleði íslenskrar náttúru. Þessi árstími er dásamlegur tími fyrir rómantíkina, heimilið fyllist af nýjum litum og mjúkum en jafnframt rómantískum línum.
Rómantík er heiti á vorlínu Lín Design sem er full af nýjungum. Orðið rómantík er sveipað dulúð sem skapar spennandi stemningu. Nýja vörulínan sameinar rómantískan sveitastíl í bland við sterka liti. Línan er innblásin af fallegum litum, blúndum og íslenskri náttúru – allt á sama tíma! Útkoman er spennandi en jafnframt djörf vörulína sem hentar inn á öll íslensk heimili.
Komdu í heimsókn til okkar og leyfðu okkur að hjálpa þér að velja réttu hlutina fyrir rómantíkina á þínu heimili.
Til að skoða vörúrvalið velur þú flokka hér að ofan - svefnherbergi, stofa, baðherbergi, börn & eldhús. Fyrir hvern vöruflokk finnur þú vörur þar sem birtar eru myndir, verð og frekari upplýsingar um vöruna.
Gerast vinur
