Við sérveljum allt lín þar sem fjöldi þráða í efninu er hámarkaður. Útkoman er silkimjúkt efni þar sem gæði og mýkt fara saman. Við hjá Lín Design hugum að umhverfinu og því höfum við hannað sérsaumaða innkaupapoka sem unnir eru úr 100% bómull.
Lín Design hefur unnið með hönnuðum sínum og framleiðendum að draga úr plastumbúðum og öðrum óumhverfisvænum umbúðum.Stór hluti af vörum Lín Design kemur nú pakkaður í efnisumbúðir sem unnar eru úr bómull.Þannig eru öll sængurver, hvort sem er fyrir fullorðna eða börnin, pökkuð í bómullarumbúðir úr sama efni og sængurverin eru framleidd úr.
Vörurnar frá LínDesign skapa hlýlegt og notalegt umhverfi og bjóða upp á mikla fjölbreytni.Hönnunin er nútímaleg en jafnframt sígild.
Við trúum því að
vandaðir hlutir gleðji og veiti vellíðan.
Þessi vefsíða notar fótspor (e. cookies) til að auðvelda þér að vafra um vefinn. geyma upplýsingar um stillingar o.flr. Með því að nota vefinn samþykkir þú stefnu okkar um notkun fótspora.